UM OKKUR
Stofnandi Efri-Vegamóta ehf. er Trausti Þór Sverrisson. Hann hefur stundað kennslu- og útvarpsstörf en hefur nú haslað sér völl á nýjum vettvangi með stofnun fyrirtækis um verk sem snýr að ættaróðali fjölskyldu hans, Vegamótastíg 9. Húsið keypti langafi hans, Davíð Jóhannesson, 1906 af Páli Guðmundssyni trésmið frá Efri-Vegamótum sem reisti húsið sumarið 1904. Í því hefur sama fjölskyldan búið síðan.
Trausti Þór hefur stundað háskólanám á sviði hug- og raunvísinda og að loknu meistaranámi til MEd prófs í stærðfræði og kennslufræði við Háskólann í Reykjavík hefur hann starfað sem skólastjóri en sinnir nú kennslustörfum í London þar sem hann býr með eiginkonu sinni, Marcellu Martinelli-Sverrisson. Í útvarpsstörfum sínum hefur hann haft með höndum margvíslega dagskrárgerð, starfað að kynningarmálum og við framkvæmdastjórn. Einnig hefur hann komið að fjölmörgum sjónvarpsútsendingum sem kynnir, einkum á sviði sígildrar tónlistar.
Trausti Þór á tvö börn, Júlíu Margréti, sem lauk söngnámi við Royal College of Music í Lundúnum sumarið 2011 og stundar nú meistaranám í tónlistarkennslu við Listaháskóla Íslands og Ólaf Sverri nemanda í hljóðtækni við Iðnskólann í Reykjavík og söng við Tónlistarskólann í Reykjavík. Trausti Þór á enn fremur stjúpson, Jóhann Meunier, sem býr í París. Móðir þeirra, Dóra Kondrup, lést 4. júlí 2006. Fjölskyldan hefur stofnað minningarsjóð í nafni hennar handa ungum Íslendingum, sem hyggja á listnám í Frakklandi, í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Franska sendiráðið þar sem Dóra starfaði um tveggja áratuga skeið, m.a. í menningardeild, og liðsinnti gjarnan ungu fólki sem hafði hug á námsdvöl í Frakklandi um lengri eða skemmri hríð. Styrkir voru veittir úr sjóðnum í fyrsta skipti sumarið 2008.
Efri-Vegamót ehf. - Vegamótastíg 9 - 101 Reykjavík
00 44 (0)75 6855 8029 - vegamotahus.is - vego@vegamotahus.is