FJÖLSKYLDAN
Á Vegamótastíg 9 hafa búið 6 ættliðir sömu fjölskyldu. Davíð Jóhannesson frá Stöðlakoti við Bókhlöðustíg keypti húsið 1906 nær nýbyggt. Með honum fluttu í húsið foreldrar hans, Jóhannes Oddsson og Salgerður Guðmundsdóttir, eiginkona, Guðrún Skaftadóttir, og börn þeirra, Skafti og Þordís Dagbjört, sem þá var þriggja ára gömul.
Börnin báru nöfn foreldra Guðrúnar, Skafta Skaftasonar járnsmiðs og Þórdísar Klængsdóttur. Þau bjuggu í Skaftabæ, sem var á þeim slóðum sem Bankastræti og Skólavörðustígur mætast. Skafti var mikill áhugamaður um lækningar og kunni talsvert fyrir sér í þeim fræðum þó ekki hefði hann próf í læknisfræði. Hann var lengi aðstoðarmaður landlæknis. Skafti og Þórdís tóku sjúklinga á heimili sitt sem dvöldu þar lengri eða skemmri tíma. Eftir að Skafti Skaftason varð ekkjumaður gerðist systir Þórdísar, Guðrún Klængsdóttir í Melkoti, ráðskona hjá honum.
Davíð Jóhannesson var lengi verkstjóri hjá Sameinaða skipafélaginu við Reykjavíkurhöfn. Hann var frá Bústöðum, sem voru á þeim slóðum sem Bústaðakirkja er nú, en líklega heldur austar, og var fæddur þar árið 1861. Í þá daga tilheyrðu Bústaðir Seltjarnarneshreppi. Hann flutti til Reykjavíkur með foreldrum sínum 1884 í einn af Stöðlakotsbæjunum við Bókhlöðustíg.
Þórdís Dagbjört stofnaði heimili með eiginmanni sínum, Ágústi Benediktssyni vélstjóra, á Frakkastíg 11 en þau fluttu í föðurhús hennar að fáum árum liðnum og bjuggu þar síðan alla tíð með börnum sínum. Elsta dóttir þeirra, Guðrún Dagný Ágústsdóttir, sem fædd er í húsinu, bjó þar einnig með foreldrum sínum, eiginmanni, Sverri Júlíussyni rekstrarhagfræðingi, og sonum.
Eftir lát Þórdísar Dagbjartar 1998 keypti elsti sonur Guðrúnar Dagnýjar og Sverris, Trausti Þór, arfshluta móðursystkina sinna í húsinu og bjó þar með eiginkonu sinni heitinni, Dóru Kondrup, og börnum þeirra, Júlíu Margréti og Ólafi Sverri ásamt stjúpsyni, Jóhanni Meunier, en Dóra lést 2006. Auk þessa fólks sömu ættar hafa fjölmargir leigjendur og gestir búið í húsinu sem of langt mál yrði upp að telja, nafnkunnastir þessara leigjenda og gesta eru Jóhannes Sveinsson Kjarval og Halldór Kiljan Laxness eins og lesa má um annars staðar. Nú búa í húsinu Júlía Margrét og Ólafur Sverrir Traustabörn ásamt leigjendum en faðir þeirra býr í London með eiginkonu sinni, Marcellu Martinelli-Sverrisson.