HAFIÐ SAMBAND
Skoða stærra kort |
Margvíslegir kostir standa þeim til boða sem hafa áhuga á Vegamótahúsi og vilja festa fé í því til búsetu, verslunar- og veitingareksturs eða útleigu. Kaupendur íbúða eiga þess kost að fá þær afhentar fullbúnar með eða án húsbúnaðar og geta komið að hönnun innanhúss með arkitektum. Frágangur íbúða verður í hæsta gæðaflokki og húsbúnaður í samræmi við það.
Kaupendur, sem ekki nota íbúðir til fastrar búsetu, eiga þess enn fremur kost að leigja íbúðir sínar til Vegamótahúss og ávaxta þar með fjárfestingu sína umfram verðþróun á fasteignamarkaði. Kaupendur verslunar- og veitingarýmis geta einnig leigt það til Vegamótahúss kjósi þeir ekki að nýta það til eigin reksturs og geta jafnframt tekið þátt í hönnun þess með arkitektum.
Efri-Vegamót ehf. - Vegamótastíg 9 - 101 Reykjavík 00 44 (0)75 6855 8029 - vegamotahus.is - vego@vegamotahus.is |