HÖNNUN VEKUR ATHYGLI

Arkitektar hússins við Vegamótastíg 7-9 eru Margrét Harðardóttir og Steve Christer hjá Studio Granda. Hönnunin hefur vakið athygli og fjallað hefur verið um hana í tveimur virtum tímaritum um hönnun og byggingarlist, Architectural Review (maí 2008, .pdf) og ForumAID (ágúst 2008) en einnig á hönnunarvefnum Designboom.com. „Það er óvenjulegt að óskað sé eftir birtingu á hlutum sem eru enn í þróun,“ sagði Steve í viðtali við Morgunblaðið (september 2008, .pdf) þegar fjallað var um verkefnið. Hann sagði þetta að mörgu leyti erfitt verkefni. Í fyrstu hafi þau komið með tillögu um nútímabyggingu á þessum stað en þá var miðað við að gamla húsið yrði flutt. „Það var eitthvert tómarúm í verkefninu,“ sagði Steve og bætti við að úr löngum hugmyndafundi hafi síðan komið upp sú hugmynd að flytja húsið uppá þak. „Úrlausnarefnið er ekki auðvelt og lóðin er þröng. Það þarf að koma þessu til skila án þess að þetta verði að leiðinlegum brandara. Það hefur óhemjumikil vinna farið í verkið. Ég held að við höfum teiknað 45-50 tillögur að því hvernig húsið ætti að líta út,“ segir hann en er sáttur við útkomuna. „Hið gamla og nýja er ein heild. Í þessu felst líka athugasemd um þróun skipulags í Reykjavík og hvaða áhrif skipulag hefur á umhverfi okkar. Gamla húsið er komið á pall, endurreist á nýjum stað.“

Varðandi hönnunina er eitt atriði sem hann vill sérstaklega benda á í sambandi við útlit hússins. „Þarna kemur saman hið gamla og nýja. Húsið er klætt í kopar, „nýi hlutinn“ er klæddur með sléttum kopar en gamla húsið með bylgjuðum kopar, sem er eins og bárujárn. Útlitið er eins og það var nema hvað við erum með betri klæðningu. Það er skemmtilegt að nota koparinn, hann virkar eins og ryðgað bárujárn og er tilvísun í það sem var.“