BÆRINN VAKNAR

Gömlu húsin við Vegamótastíg, sem ganga í endurnýjun lífdaganna sem hluti nýbyggingarinnar, eru góð dæmi um þróun húsagerðar í Reykjavík í þann mund sem bærinn var að vakna. Á vef Sögusýningar Árbæjarsafns um sögu Reykjavíkur segir um þennan tíma: „Árið 1904 var Íslendingum veitt takmarkað sjálfstæði með heimastjórn. Þeir fengu eigin ráðherra sem var ábyrgur gagnvart Alþingi og Stjórnarráð Íslands var stofnað í Reykjavík. Þar með tók Reykjavík raunverulega við hlutverki Kaupmannahafnar sem höfuðborg Íslands. Þessi þróun var svo innsigluð með fullveldi Íslands árið 1918. Gamla íslenska bændasamfélagið var að ummyndast í nýtískulegt borgar- og iðnaðarsamfélag þar sem Reykjavík bar höfuð og herðar yfir aðra staði. Fólk streymdi þangað og mikil fólksfjölgun hélst nær óslitin alla 20. öld.“

Hjónin á Vegamótastíg 9, Davíð Jóhannesson, verkstjóri hjá Sameinaða skipafélaginu við Reykjavíkurhöfn, og eiginkona hans, Guðrún Skaftadóttir, voru gestrisin og fóru ekki varhluta af fólksstraumnum til borgarinnar. Rishæðin og íbúðarherbergi í kjallara voru leigð út og um tíma var leigt suðurherbergi á hæðinni sjálfri. Í því herbergi bjuggu tveir sögufrægustu listamenn þjóðarinnar um tíma á námsárum sínum, Jóhannes Sveinsson 1909-1911 og Halldór Guðjónsson frá Laxnesi 1914-1916 eins og lesa má um í endurminningum þeirra.

Einn af öðrum hurfu Vegamótabærinir við stíginn, hinn síðasti, Herdísarbær, í júnímánuði 1964. Stórhýsi risu allt í kring, fyrst Laugavegur 16 (Laugavegsapótek), síðan Grettisgata 3, þá Laugavegur 18 (Liverpool, nú Dressman) og loks hið umdeilda og söguríka hús Máls og menningar þar sem eigendur buðu hirðskáldi sínu, Halldóri Laxness, íbúð á efstu hæð. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis reisti svo byggingu sína við Skólavörðustíg 11 árið 1969 á lóðum þar sem stóðu áður timburhús Benedikts Sveinssonar Alþingisforseta og Tobbukot, steinbær Þorbjargar Sveinsdóttur, föðursystur Einars skálds Benediktssonar. Síðan hafa litlar breytingar orðið á þessu svæði að frátaldri endurbyggingu húsakynna Reykjavíkurborgar við Vegamótastíg 4 sem nú hýsa tvö af vinsælustu veitingahúsum borgarinnar.

Umhverfi fyrirhugaðrar nýbyggingar er ríkt af söguefni sem verða gerð skil með sýningu í samvinnu við Borgarskjalasafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Árbæjarsafn í þann mund sem nýbyggingin verður tekin í notkun.