FJÁRFESTING
Nú fer í hönd lokahönnun Vegamótahúss og áhugasömum fjárfestum og kaupendum gefst tækifæri til að koma nú að verkinu og taka þátt í mótun þess til enda. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist snemma árs 2014 og ljúki vorið 2015. Áætlað heildarmarkaðsverð hússins er 610 milljónir kr. miðað við byggingarvísitölu í ágúst 2012. Áætlun miðast við að nýbyggingin sé fullfrágengin að innan sem utan og íbúðir fullinnréttaðar á vandaðan og smekklegan hátt. Vænta má a.m.k. 9% ávöxtunar af fjárfestingu í húsinu með leigutekjum. Fasteignagjöld og orkukostnaður nemur um 0,6-0,7% af kaupverði íbúða en 1,7% af kaupverði verslunar- og veitingarýmis.
Teikning | Tegund | Staðsetning | Stærð, fm. | Hluti, % | Kaupverð, kr. | Á fermetra | Tekjur**, kr. | Gjöld/mán. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
ONS | Verslun, veitingar | Jarðhæð | 270,9 | 18,36 | 108.700.000 | 397.000 | 820.000 | 150.770 |
1NS | Verslun, veitingar | Fyrsta hæð | 270,9 | 18,36 | 108.000.000 | 397.000 | 820.000 | 150.770 |
2N1-4* | Fjórar stúdíóíbúðir | Önnur hæð, norður | 35,3 | 2,36 | 14.210.000 | 403.000 | 118.000 | 13.274 |
2S1-2* | Tvær stúdíóíbúðir | Önnur hæð, suður | 40,0 | 2,38 | 16.125.000 | 403.000 | 135.000 | 14.854 |
2S3* | Horníbúð | Önnur hæð, suðurr | 49,0 | 3,28 | 19.750.000 | 403.000 | 165.000 | 17.847 |
3N1-4* | Fjórar stúdíóíbúðir | Þriðja hæð, norður | 35,4 | 2,37 | 14.250.000 | 403.000 | 118.000 | 13.307 |
3S1-2* | Tvær stúdíóíbúðir | Þriðja hæð, suður | 35.0 | 2,35 | 14.110.000 | 403.000 | 118.000 | 13.191 |
3S2* | Horníbúð | Þriðja hæð, suður | 50,6 | 3,39 | 20.400.000 | 403.000 | 170.000 | 18.379 |
4N | Íbúð | Fjórða hæð, norður | 127,0 | 8,73 | 53.250.000 | 419.000 | 440.000 | 25.232 |
4S | Íbúð | Fjórða hæð, suður | 86,6 | 5,95 | 36.310.000 | 419.000 | 300.000 | 30.636 |
5N | Þakíbúð | Fimmta hæð, norður | 83,9 | 6,12 | 37.400.000 | 445.000 | 310.000 | 30.176 |
5S, 6S | Þakíbúð | 5.-6. hæð, suður | 114,8 | 8,38 | 51.200.000 | 420.000 | 420.000 | 40.719 |
*Teikningar sýna fyrstu hönnun, nýjar teikningar væntanlegar.
**Af nýtingu íbúða sem hótelíbúða.
Gerður er leigusamningur um lóðarréttindi til 50 ára við kaupendur eignarhluta í húsinu og nemur leigugjald 1% af lóðarverði. Leigugjald til 50 ára er 45.500 kr. fyrir hvern fermetra íbúðar-, verslunar- og veitingarýmis.