VEGAMÓTAHÚS - „ÞAR SEM SÓLIN BJÓ“

Unnið er að undirbúningi nýbyggingar á lóðinni við horn Vegamótastígs og Grettisgötu í miðbæ Reykjavíkur, Vegamótahúss. Studio Granda arkitektar hafa teiknað hús sem vakið hefur mikla athygli fyrir óvenjulega hönnun og fjallað hefur verið um verkið í tímaritum um hönnun og byggingarlist, Architectural Review (maí 2008, .pdf), ForumAID (ágúst 2008) og á hönnunarvefnum Designboom.com auk kynningargreinar í Morgunblaðinu (september 2008, .pdf). Í húsinu verða verslanir, veitingastaður og samkomusalur á jarðhæð og fyrstu hæð en allt að 18 íbúðir á efri hæðum nýttar að mestu sem hótelíbúðir.

Hönnunin felur í sér athyglisverða endurgerð tveggja húsa, steinbæjarins sem stóð á Vegamótastíg 7 og timburhússins sem enn stendur við Vegamótastíg og Páll Guðmundsson trésmiður reisti á lóð sinni 1904 sem þá var nefnd Efri-Vegamót. Húsið hefur verið í eign sömu fjölskyldu frá upphafi. Þar málaði Kjarval í suðurstofunni „þar sem sólin bjó“ og Halldór Guðjónsson frá Laxnesi var þar heimagangur á unglingsárum. Í Sjömeistarasögu lýsir hann lífinu í húsinu, m.a. því þegar hann sjö ára gamall horfði á Kjarval „mála dreka úr gulli á svart silki“ og samdi síðar fyrstu sögu sína, Aftureldingu, sem nú er glötuð. Húsið á sér því merka sögu og menningarsöguleg verðmæti þess eru ótvíræð.

Heiti verkefnisins og hússins sjálfs, Vegamótahús, er sótt í bréf Jóhannesar Kjarvals til Ásgríms Jónssonar 1953 og hæfir vel því markmiði að í húsinu verði þegar fram líða stundir vegamót almennings og fræði-, vísinda- og listamanna auk gestaíbúða. Með þessu er leitast við að virða þau menningarverðmæti sem felast í sögu gamla hússins á Vegamótastíg 9 og ávaxta þau.

Efri-Vegamót ehf. standa að framkvæmdum og hafa kappkostað að leita samstarfs við virta og trausta aðila við undibúning verksins. VIRTUS veitir Efri-Vegamótum ehf. lögmanns- og rekstrarþjónustu, Studio Granda hannar nýbygginguna, verkfræðistofan VÍÐSJÁ hefur með höndum burðarþols- og lagnahönnun og Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf. hannar raflagnir. ÍSTAK hefur veitt ráðgjöf við undirbúning verkefnisins. Hótelíbúðarekstur verður í samstarfi við Room With A View Apartments.