TRAUSTIR SAMSTARFSAÐILAR

Fyrirtækið Efri-Vegamót ehf. var stofnað um verkið og hefur kappkostað að leita samstarfs við virta og trausta aðila við undibúning verksins. VIRTUS veitir Efri-Vegamótum ehf. lögmanns- og rekstrarþjónustu, Studio Granda hannar nýbygginguna, verkfræðistofan VÍÐSJÁ hefur með höndum burðarþols- og lagnahönnun og Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar ehf. hannar raflagnir. ÍSTAK hefur veitt ráðgjöf við undirbúning verksins.

VIRTUS tók til starfa í ágúst 2006 eftir sameiningu Krónos ehf. og Lögstofu Björns Líndals. Fyrirtækið starfar á sviði lögmannsþjónustu, bókhalds- og rekstrarráðgjafar auk innheimtu- og endurskoðunarþjónustu. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 20 starfsmenn. Að baki VIRTUS standa Þorkell Guðjónsson viðskiptafræðingur, Björn Líndal lögmaður og Kjartan Arnfinnson endurskoðandi.

Studio Granda var stofnað af Margréti Harðardóttur og Steve Christer í Reykjavík árið 1987 í kjölfar samkeppni um Ráðhús Reykjavíkur. Verkefni stofunnar hafa verið margvísleg, allt frá skipulagi og samgöngumannvirkjum til iðnhönnunar og innsetninga í samstarfi við listamenn.

Verkfræðistofan Víðsjá á að baki langan og farsælan feril við hönnun burðarþols og lagna fjölmargra bygginga. Meðal helstu verkefna undanfarin ár má nefna skrifstofubyggingu að Skógarhlíð 8, Fiskimjölsverksmiðju Helguvík, Vesturbæjarskóla, Garðatorg 7, íbúðir, skrifstofuhús og verslun, íbúðahverfi við Háskólann á Bifröst og Dómhús við Lækjargötu. Framkvæmdastjóri verkfræðistofunnar Víðsjár er Jón Logi Sigurbjörnsson byggingaverkfræðingur.

Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, VJI annast hönnun og ráðgjöf sem varðar raforkukerfi og raflagnir smáspennu, lágspennu eða háspennu og auk þess áætlanagerð og eftirlit með framkvæmdum. Starfsemin nýtur góðs af þeirri áralöngu reynslu og þekkingu sem hefur safnast í yfir 50 ára samfelldum rekstri. VJI veitir einnig fjölbreytta og víðtæka rekstrar- og fjármálaráðgjöf.

Íbúðahótelið Room With A View mun reka hótelíbúðir í húsinu.