VERSLANIR, VEITINGAR, VINNUSTOFUR

Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir verslunum ásamt veitingastað með glerveggjum að mannlífi götunnar sem tengir saman verslunarsvæðin við Laugaveg og Skólavörðustíg. Staðsetning verslana og veitingastaðar er á kjörstað með breikkaðri gangstétt og trjágróðri til suðurs þar sem koma má fyrir borðum á góðviðrisdögum. Á jarðhæð verða vinnustofur og samkomusalur, vettvangur nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.

Í þessu rými verður leitast við að skapa aðlaðandi, örvandi og frjótt umhverfi fyrir þá sem þangað vilja koma. Auk hótelíbúðareksturs í húsinu er því ætlað með tíð og tíma að verða vegamót fræði-, vísinda- og listamanna sem fást við rannsóknir, kennslu og sköpun á sviði bókmennta, sjónlista, tónlistar, tækni og vísinda með málþingum, tónleikum, sýningum og upplestri ásamt gestaíbúðum. Með þessu er leitast við að virða þau menningarverðmæti sem felast í sögu gamla hússins á Vegamótastíg 9 og ávaxta þau. Um leið yrði húsið samkomustaður frumkvöðla til nýsköpunar, til að ræða og móta góðar hugmyndir og vinna að framgangi þeirra með aðstöðu til funda og fyrirlestra en einnig til að slaka á í góðra vina hópi.

Kaupendum og fjárfestum gefst nú kostur á að koma að verkefninu áður en lokahönnun fer fram og framkvæmdir hefjast með því að festa sér verslunar- og veitingarými á fyrstu hæð og í jarðhæð. Hafið samband ef óskað er frekari upplýsinga, vego@vegamotahus.is.