TAKTU ÞÁTT

Margvíslegir kostir standa þeim til boða sem hafa áhuga á Vegamótahúsi og vilja festa fé í því til búsetu, verslunar- og veitingareksturs eða útleigu. Kaupendur íbúða eiga þess kost að fá þær afhentar fullbúnar eða skemmra komnar og geta tekið þátt í hönnun innanhúss með arkitektum. Kaupendur, sem ekki nota íbúðir til fastrar búsetu, eiga þess enn fremur kost að leigja íbúðir sínar til reksturs hótelíbúða Vegamótahúss og ávaxta þar með fjárfestingu sína umfram verðþróun á fasteignamarkaði. Kaupendur verslunar- og veitingarýmis geta einnig leigt það til Vegamótahúss kjósi þeir ekki að nýta það til eigin reksturs og geta jafnframt tekið þátt í hönnun þess með arkitektum.

Allt að átján íbúðir eru til sölu í húsinu, 35,0-127,0 fm. að stærð, ásamt 541,8 fm. af verslunar- og veitingarými. Gerður er leigusamningur um lóðarréttindi til 50 ára við kaupendur eignarhluta í húsinu og nemur leigugjald 1% af lóðarverði. Lóðarleigugjald til 50 ára fyrir hvern fermetra er 45.500 kr.

Áætlað heildarmarkaðsverð alls hússins er 610 milljónir kr., íbúða 393 milljónir kr. og verslunar-, veitinga og samkomurýmis á jarðhæð og í kjallara 217 milljónir kr. Fermetraverð íbúða er á bilinu 403.000-445.000 kr./fm. eftir legu og hæðum og fermetraverð verslunar- og veitingarýmis er 397.000 kr./fm. Áætlað leiguverð verslunar-, veitinga og samkomurýmis á jarðhæð og í kjallara er kr. 3000 kr./fm. Frekari upplýsingar um þessa kosti má finna á þessum síðum og með því að hafa samband, vego@vegamotahus.is.

Efri-Vegamót ehf. - Vegamótastíg 9 - 101 Reykjavík

00 44 (0)75 6855 8029 - vegamotahus.is - vego@vegamotahus.is