UMHVERFIÐ
Nýbyggingin rís í miðju hringiðu reykvísks borgarlífs þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir og veitingahús með verslunargöturnar Laugaveg og Skólavörðustíg hvora til sinnar handar. Á fjórða hundrað verslanir eru í miðborg Reykjavíkur. Hvergi á landinu eru fleiri og fjölbreytilegri verslanir saman komnar á einum stað. Mikið er um sérverslanir, listmuni og íslenska hönnun í fatnaði og skartgripum. Í flestum þessara verslana er mjög persónuleg þjónusta, enda algengt að eigendur og hönnuðir séu sjálfir við afgreiðslu.
Margar menningarstofnanir í miðbænum eru í stuttu göngufæri, s.s. Þjóðleikhúsið, Þjóðmenningarhúsið, Harpa, Borgarbókasafnið, Listasafn Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Bíóparadís. Húsið verður miðja vegu milli tveggja helstu bókaverslana miðbæjarins, Máls og menningar og Eymundssonar og stutt frá matvöru- og sælkeraverslunum, t.d. Bónus, Ostabúðinni og Sandholtsbakaríi. Mörg af vinsælustu kaffihúsum borgarinnar eru í næsta nágrenni. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar eru innan seilingar og mörg falleg útivistarsvæði til leikja og hressingar, Tjarnarsvæðið og Vatnsmýrin með Hljómskálagarðinum, hafnarsvæðið með iðandi mannlífi og strandlengjan inn að Laugarnesi.
Margar helstu menntastofnanir borgarinnar eru í miðborginni eða nágrenni hennar, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands auk tveggja menntaskóla, Menntaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík. Miðborgin liggur vel við samgöngum með Reykjavíkurflugvöll og Umferðarmiðstöðina við bæjardyrnar. Í jaðri byggðarinnar rís nýr Landspítali en heilsugæslu og aðra læknisþjónustu má finna í ríkulegum mæli á svæðinu. Búseta í miðborg Reykjavíkur hefur marga kosti, einkum fyrir þá sem þar vilja starfa og geta því verið óháðir notkun einkabílsins til flestra daglegra erinda. Hentug bílastæði má þó leigja í nálægum bílastæðahúsum.
Miðborgin er eftirsóknarverður vettvangur góðra stunda í hugum borgarbúa, margvísleg hátíðahöld árið um kring færa sönnur á það s.s. vetrarhátíð og menningarnótt. Markviss og nærfærin uppbygging í kvosinni undanfarin ár með endurnýjun og endurbyggingu gamalla húsa gefur fyrirheit um að borgaryfirvöld hafi fundið leið til að efla byggðina í samræmi við arfleifð og sögu án þess að það setji notagildi hins byggða umhverfis skorður. Hið sérkennilega fjölbreytta, smágerða og litríka yfirbragð miðborgarinnar er óvíða að finna annars staðar og það ber að efla með ráðum og dáð. Vegamótahús er hannað og byggt með það markmið að leiðarljósi.