AÐDRAGANDI
Árið 2002 var samþykkt deiliskipulag fyrir reitinn sem afmarkast af Vegamótastíg, Laugavegi, Klapparstíg og Grettisgötu, skipulagsreit 1.171.5. Það fól m.a. í sér aukið nýtingarhlutfall lóðanna Vegamótastígur 9 og Laugavegur 18b. Árið 2005 var auglýst breyting á þessu deiliskipulagi þar sem baklóð Laugavegar 18b er skilgreind sem Vegamótastígur 7 eins og var þegar steinbærinn Herdísarbær stóð á lóðinni. Á lóðinni Vegamótastígur 9 stendur íbúðarhús byggt árið 1904 en lóðin Vegamótastígur 7 stendur auð og er leigð sem bílastæði til nota fyrir gesti hótelíbúða að Laugavegi 18 og 18b.
Í lýsingu svæðis í téðu deiliskipulagi segir: „Byggð á reitnum er allheilsteypt. Þar er því ekki tilefni til mikilla breytinga. Götumynd austanverðs Vegamótastígs virðist þó ófullgerð og þarfnast styrkingar.“ Hér er einkum átt við lóðina Vegamótastígur 7 þar sem nú er bílastæði. Eftir að deiliskipulagið var samþykkt urðu til a.m.k. fjórar teikningar af nýbyggingum á þessum tveimur lóðum við Vegamótastíg, nr. 7 og 9, án vitundar eiganda lóðarinnar Vegamótastígur 9. Falast var eftir lóðinni Vegamótastígur 9 en eigandi hennar, Trausti Þór Sverrisson, ákvað loks að standa sjálfur að nýbyggingu þar. Jafnframt vildi hann varðveita það hús, sem nú stendur á lóðinni þar sem fjölskylda hans hefur búið mann fram af manni í 6 ættliði, enda ástand hússins prýðilegt og innviðir heilir. Hönnun Studio Granda fól í sér breytingu á skipulagi reits 1.171.5 sem samþykkt var í skipulagsráði Reykjavíkurborgar í september 2008.
Reyndar sómir húsið á Vegamótastíg 9 sér vel á lóðinni þótt að því hafi þrengt á áranna rás með nýbyggingum. Það er góður fulltrúi sinnar húsagerðar eins og húsin í grennd, Skólavörðustígur 9 (Hegningarhúsið), Skólavörðustígur 11 (Hús Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis), Laugavegur 16 (Laugavegsapótek/Hótel Skjaldbreið) og Laugavegur 18 (Mál og menning) og saman mynda þau heild fjölbreyttrar byggðar í hjarta miðbæjarins. Hins vegar er lóðin Vegamótastígur 7 eins og ör í þessari mynd og vel hefði mátt byggja þar hús sem brúaði með einhverju móti bilið milli gamla hússins nr. 9 og stórhýsisins Laugavegur 18. Deiliskipulag reitsins miðast hins vegar ekki við það og athyglisvert er að húsakönnun á reitnum var ekki gerð þegar unnið var að deiliskipulaginu sem samþykkt var 2002. Mikið ónæði af veitingahúsa- og skemmtistaðarekstri við Vegamótastíg og umferð sem tengist honum veldur því að gamla húsið þjónar nú ekki lengur hlutverki sínu sem gott íbúðarhús.