ÞRÓUN - GAMALT Á NÝJUM GRUNNI
Verkið felur í sér að byggja nýtt hús á lóðunum Vegamótastígur 9 og Vegamótastígur 7 samkvæmt deiliskipulagi fyrir reitinn 1.171.5 frá árinu 2002 með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á því vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar. Í byggingunni og fyrirhugaðri starfsemi þar koma saman margir þræðir sögu og samtíðar. Hönnun nýbyggingar á Vegamótastíg 7 og 9 er tilraun til að líta húsvernd í nýju ljósi og leita sátta á milli hins gamla og nýja.
Upphaflega stóð til að byggja einungis á lóðinni Vegamótastígur 9, enda var lóðin Vegamótastígur 7 í eigu annarra, en augljóst hagræði er af því að byggja samtímis á báðum lóðum. Efri-Vegamót ehf. festu því kaup á lóðinni Vegamótastígur 7 í októbermánuði 2007. Hönnunin felur í sér óvenjulega varðveislu gamla timburhússins sem nú stendur á Vegamótastíg 9 og jafnframt endurgerð steinbæjar sem stóð á Vegamótastíg 7 en var rifinn um miðjan 7. áratuginn.
Hönnuðir höfðu frjálsar hendur um hvaða stefnu verkið tæki og þess gætt að gefa því góðan tíma til að þróast svo laða mætti fram áhugaverða og nýstárlega hugmynd um nýbyggingu. Eftir nokkrar tillögur um fremur hefðbundna byggingu kom fram hugmynd um þá hönnun sem nú liggur fyrir og samþykkt var í skipulagsráði Reykjavíkurborgar í september 2008. Þar er brotið blað í húsavernd og farin alveg ný leið til að sætta gamalt og nýtt í miðborg Reykjavíkur.
Flatarmál hússins er innan marka áður samþykkts deiliskipulags fyrir lóðirnar. Forsendur breytts deiliskipulags eru því ekki aukning byggingarmagns, heldur að laga húsið betur að sögulegu samhengi og gera það áhugaverðara í götumyndinni. Sökkull gömlu húsanna vex saman við útveggi nýja hússins, sem er látlaust og einfalt, enda með fallegar skrautfjaðrir í hattinum. Efst uppi standa gömlu húsin í afgirtum garði með gróðri sem ber við himinn þegar horft er upp frá götunni. Nýbyggingin gleypir því ekki gömlu húsin, heldur ber þau á öxlum sér og veitir þeim frelsi. Nútíminn ber uppi söguna sem myndhverfist í sterkt kennileiti í borginni.