FRAMKVÆMDIR

Nú fer í hönd lokahönnun Vegamótahúss og áhugasömum fjárfestum og kaupendum gefst tækifæri til að koma nú að verkinu og taka þátt í mótun þess til enda. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist snemma árs 2014 og ljúki vorið 2015. Áætlað heildarmarkaðsverð hússins er 610 milljónir kr. miðað við byggingarvísitölu í ágúst 2012. Áætlun miðast við að nýbyggingin sé fullfrágengin að innan sem utan og íbúðir fullinnréttaðar á vandaðan og smekklegan hátt. Vænta má a.m.k.5,00% ávöxtunar af fjárfestingu í húsinu með leigutekjum. Fasteignagjöld og orkukostnaður nemur um 0,6-0,7% af kaupverði íbúða en 1,7% af kaupverði verslunar- og veitingarýmis.